top of page
Search

2026 Sumardagurinn fyrsti

Þvílíkur dagur og GLEÐILEGT SUMAR Sumardagurinn fyrsti er stór dagur hjá okkur í Skátafélaginu Árbúum. Eftir hellings undirbúning byrjum við daginn á vöfflum með frábæru skátunum okkar í heimilinu okkar að Hraunbæ 123. Þegar klukkan slær 12 er svo stillt upp í síðasta sinn áður en stórir og smáir Árbúar halda í skrúðgöngu frá Árseli/Árbæjarkirkju. Þar hittum við frábæra krakka úr skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts og höldum saman fylktu liði niður á Árbæjarsafn. Þar bíður gestum og gangandi hressileg skátaævintýri í bland við yndislega menningarsögu og vinnustofur. Sumardagurinn fyrsti er stærsta fjáröflun stórra og smárra Árbúa þar sem lærdómur og þroskatækifæri bíða þyrstum skátum á hverju sumri. Í sumar verður Landsmót skáta haldið að Hömrum fyrir utan Akureyri en þar ætla Árbúar að taka virkan þátt. Við viljum þakka Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts og Árbæjarsafni fyrir samstarfið í dag. Án ykkar hefði dagurinn ekki verið eins ævintýralegur og út varð.


 
 
 

Comments


Skátafélagið Árbúar

Hraunbær 123

110 Reykjavík 

Email: arbuar@skatarnir.is

Sími: 778-8011

Logo_3_Blatt_2x.png
bottom of page