top of page
Search

2026 Félagsútilega Árbúa

Helgina 25-26 Apríl héldu Árbúar félagsútilegu í Ölver undir Hafnarfjalli. Mæting var á föstudegi klukkan 20:00 fyrir alla aðra en drekaskáta. Drekskátar mættu svo í dagsferð á laugardeginum. Ölver tók vel á móti okkur, húsnæði og umhverfi hentar vel í skátastarf og ekki var verra að vera með fullbúið eldhús þar sem allt var til staðar fyrir stóran hóp. Veðrið á föstudeginum var frábært, fengum sól og nutum þess að vera úti. Á laugardeginum var einnig fínasta veður þurrt og smá vindur en sólin faldi sig á bakvið skýin. Á laugardeginum var þétt dagskrá þar sem farið var í göngu, tálgað, eldað úti, lært á áttavita og margt fleira. Á laugardagskvöldinu var kvöldvaka þar sem sungin voru skátalög og nýjir skátar vígðir. Við viljum þakka sérstaklega okkar frábæru sjálfboðaliðum og foringjum sem gerðu þessa útilegu mögulega.


 
 
 

Comments


Skátafélagið Árbúar

Hraunbær 123

110 Reykjavík 

Email: arbuar@skatarnir.is

Sími: 778-8011

Logo_3_Blatt_2x.png
bottom of page