top of page

Um Skátafélagið ÁRBÚA

Formlegur stofnunardagur félagsins er skráður 22. febrúar 1977 en það tók nokkur ár af undirbúningi áður en félagið var formlega stofnað. Fyrstu upplýsingar um áhuga á skátastarfi í Árbænum er undirskriftarlisti sem er dagsettur 31. mars 1974.  Sent var bréf til þáverandi skátahöfðingja þar sem að lýst er yfir áhuga á að stofna skátafélag í hverfinu og biður um aðstoð við það. Undir bréfið skrifa 60 manns og tekið er fram á undirskriftalistanum að aðeins hafi verið farið í 13 stigaganga þannig að það var greinilega mikill áhugi til staðar. Undirbúningur að stofnun félagsins hófst haustið 1976 þegar Nína Hjaltadóttir boðaði til fundar í Framfarafélagshúsinu. Í nóvember sama ár boðar Bandalag íslenskra skáta til fundar þar sem stofnað var foreldraráð sem hafði það hlutverk að vera stuðningsmannhópur við stofnun skátafélags í Árbæjar og Seláshverfi. Í þessu ráði voru áhugasamir foreldrar sem bjuggu í hverfinu. Nína fól Aðalsteini Hallgrímssyni að stofna félagið formlega. Fyrsta skátaheimili félagsins var Skólagarðakofinn fyrir neðan Árbæjarsafn. Félagið var svo nánast húsnæðislaust á tímabili og voru fundir haldnir í andyri kirkjunnar og heima hjá skátunum áður en élagið fékk aðstöðu í félagsmiðstöðinni Árseli en þaðan var það flutt í Hraunbæ 123 þar sem að það hefur aðsetur enn þann dag í dag.

Fyrsta innritun í félagið var laugardaginn 13. nóvember 1976. Ljóst er á félagatali að ekki skorti áhugann í hverfinu því á fyrsta starfsárinu voru 60 manns skráð í félagið. Strax næsta starfsár voru 154 skráðir í félagið, haldnir voru 238 fundir, farið var í 11 dagsferðir og 9 útilegur. Það er því ljóst að starfið fór vel á stað og mikill áhugi var í hverfinu á skátastarfi.

Föstudaginn 19.11.1976 var samþykkt að nota það merki félagsins sem er enn í notkun í dag en þess má þó geta að merkið hefur þó tekið smávægilegum breytingum í gegnum árin.

Árbúar fóru strax 1977 að taka þátt í skrúðgöngu í hverfinu á sumardaginn fyrsta en þeirri venju hafa Árbúar haldið alla tíð síðan. Árbúar höfðu um nokkurn tíma umsjón með skálum sem skátar gátu nýtt sér. Var þar um að ræða Silungapoll sem staðsettur var í Rauðhólum, Kút og Surt fyrir eldri skáta sem staðsettir voru á Hellisheiði auk þess sem félagið hafði síðar á sinni könnu Hafravatnssvæðið þar með talið skálann. Seinna kom svo til Skáli í Sleggjubeinsskarði sem bar það skemmtilega nafn Glaumbær. Í dag hefur félagið ekki umsjón með neinum skála.

Árbúar hafa komið að ýmsu í gegnum árin og má þar t.d nefna að í júlí 1985 tók félagið að sér að sjá um Reykjavíkurmót barnanna sem haldið var í Hljómskálagarðinum, þar sem börn kepptu í allskyns íþróttum eins og hlaupi, körfu og húlli. Á sumrin hélt félagið sitt eigin skátamót sem nefdist Árbúamót og var það ávalt mikið fjör.

Félagatalið hefur farið upp og niður og lagðist félagið nánast af á tímabíli en þökk sé áhugasömu fólki og eldri skátum þá tókst félaginu að ná sér á strik aftur. Mestur var félagafjöldin á árunum 1978 -1983 er störfuðu að jafnaði um 300 manns í félagin á hverjum tíma. Í dag eru starfandi í félaginu tæplega 80 manns á öllum aldri auk þess sem við eigum gott bakland í ykkur foreldrum. Í 40 ára sögu félagsins hafa 15 manns gengt stöðu félagsforingja. Má þar geta að Aðalsteinn Hallgrímsson gengdi stöðunni frá óformlegri stofnun 1976 til ársins 1983 er Stefanía Jónsdóttir tók við.

Sigríður L. Hálfdánardóttir fyrrum félagsforingi Árbúa. Ræða sem var haldin á 40 ára afmæli Árbúa árið 2018, Reykjavík, 22. febrúar.

Tekið af vefnum: https://skatasaga.wordpress.com/skatafelagid-arbuar/

Skátafélagið Árbúar

Hraunbær 123

110 Reykjavík 

Email: arbuar@skatarnir.is

Sími: 778-8011

Logo_3_Blatt_2x.png
bottom of page