2026 Dróttskátadagurinn
- Skátafélagið Árbúar
- 7 days ago
- 1 min read
Um helgina var Dróttskátadagurinn haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn, þar sem Heiðabúar buðu heim. Þar var mikil og flott dagskrá og heppnaðist dagurinn virkilega vel! Skátarnir fengu að spreyta sig í ýmsum þrautum þar sem reyndi á samvinnu og útsjónarsemi, auk þess sem þau reyndu á sjálfan sig með því að hoppa í ískaldann sjóinn, fengu að fara á slöngubát og prufa að skjóta af loftbyssu. Árbúarnir þáðu að gista hjá Heiðabúum og ákváðu í kjölfarið að reyna við færnimerkið Vöku, sem felur í sér að þau vaki í heilan sólarhring og leysi líkamlegar og félagslegar þrautir á nokkurra tíma fresti og finni þannig áhrif þreytunnar á getu þeirra. Í morgunsárið skelltu þau sér svo í sund til að hressa sig aðeins við. Þetta tókst þeim öllum prýðilega en heim komu ansi þreyttir en sáttir skátar! Við þökkum dróttskátunum kærlega fyrir helgina og sendum RISASTÓRT HRÓS á Heiðabúa fyrir frábæra dagskrá á þessum allra fyrsta dróttskátadegi og þakkir fyrir lánið á skátaheimilinu. (Hafdís Jóna)










Comments