top of page
Search

Landsmót skáta 2026

Updated: 1 day ago


Bandalag íslenskra skáta býður skátum um allan heim á Landsmót sumarið 2026. Landsmótið verður haldið dagana 20. – 26. júlí og verður þemað “á norðurslóð”. Komið með og upplifið ævintýrin í heillandi umhverfi Hamra.

Landsmót er fyrir skáta á aldrinum 10 – 17 ára.  Landsmótið er uppskeruhátíð skáta, við bjóðum til okkar erlendum þátttakendum og erum saman í vikutíma. Á Landsmóti skáta koma saman rúmlega 2- 3000 skátar frá um 20 þjóðlöndum. 

Á Landsmóti skáta skapast sannkallaður ævintýraheimur. Á mótssvæðinu byggir hvert félag upp tjaldbúð þar sem skátarnir búa í vikutíma. Það reynir á skátana og mörg fara út fyrir þægindarammann sinn þegar þau fara í fyrsta sinn á skátamót og dvelja í tjaldi með öðrum. Skátarnir fá tækifæri til að kynnast ólíkum einstaklingum og mynda ný vinatengsl. Skátamót eru ein af lykilstoðum skátastarfs því þar gefst okkur kostur á að efla leiðtogahæfni og skapandi huga. Úti í náttúrunni getur skátinn fundið tengingu við umhverfið og eigin tilveru. Við tökumst á við krefjandi áskoranir sem styrkja sjálfstraust, ábyrgð og þekkingu okkar. 

Dagskrá á Landsmóti er fjölbreytt Leikir Hike Tjaldbúðalíf BæjarferðÞrautir Kvöldvökur Næturleikir og margt fleira frá morgni til kvölds.

 
 
 

Comments


Commenting on this post isn't available anymore. Contact the site owner for more info.

Skátfélagið Árbúar

Hraunbær 123

110 Reykjavík 

Email: arbuar@skatarnir.is

Sími: 778-8011

bottom of page