Aðalfundur Árbúa 2026
- Skátafélagið Árbúar
- Feb 23
- 1 min read
Updated: Feb 24
Aðalfundur Árbúa var haldin 23. febrúar 2026 í Skátaheimili Árbúa. Eins og svo oft áður var Auðna Ágústsdóttir kosin fundarstjóri og stýrði hún fundi af mikilli festu og hélt fundarmönnum við efnið. Félagsforinginn Eva María fór yfir skýrslu stjórnar þar sem var tekið saman það helsta sem Árbúar gerðu árið 2025 og þátttakenda tölur. Eva Íris fór yfir ársreikning félagsins fyrir 2025. Í stuttu máli hefur starfið gengið vel og er félagið að vaxa með kraftmiklu starfi okkar frábæru foringja. Félagsforingi og tveir aðstoðarfélagsforingjar buðu sig aftur fram og fengu allir kosningu. Stjórnin verður því óbreytt og sitja í henni Eva María Sigurbjörnsdóttir, Eva Íris Eyjólfsdóttir, Elvar Gíslason, Páll Þórir Daníelsson og Svava Dröfn Davíðsdóttir. Kjartan og Guðjón fengu Þórshamarinn fyrir vel unnin störf. Einnig voru veitt Starfsaldursmerki 5, 10, 20 og 30 ára.


















Comments